mánudagur, október 06, 2008

Raunir 52

Er fólk í alvörunni að láta það út úr sér í fjölmiðlum
að við séum að sigla inn í heimstyrjöld -
með kjarnorkuvopnum???

Hvað er að fólki?!

Getur liðið ekki reynt að hemja sig
og ætti það ekki að leitast við að róa fólkið í landinu,
í stað þess að hræða úr því líftóruna?

Andskotans æsifréttamennska er þetta.
Er ekki nóg samt?

En fokk.
Ég hélt að ég gæti loksins farið að slappa af,
en nú þarf ég líklegast að afþýða frystinn
og versla slátur í massavís.
Klessa svo bílinn
þar sem ég fæ ekki að skila honum........

Samt...........
mikið er ég glöð að ég er fáviti í peningamálum,
annars hefði ég endurfjármagnað á sínum tíma
og væri núna að missa íbúðarræfilinn.
Einnig á ég engin hlutabréf
og ekki krónu inni á bók.
Lífeyrinn minn er í Allianz.

Stundum er gott að vera vitleysingur.

Allir að muna að anda inn og út.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heyrði á Bylgjunni menn kalla til stjörnugúrú til að spá í málin gegnum stjörnurnar! Vitleysingurinn ég fór að skellihlæja, og ég át slátur í kvöld og er í því að anda rétt. Kær kveðja í bæinn, Gulla Hestnes.

10:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home