föstudagur, september 19, 2008

Sævar Halldórsson f.25.6.'34 - d.19.9.'08

Elsku pabbi litli
kvaddi þennan heim í nótt.

Farinn í eilífðarreiðtúrinn.

Ég elska þig pabbi minn
og vertu nú stilltur.


Ég berst á fáki fráum fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og golan kyssir kinn
Á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.

Það er sem fjöllin fljúgi móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi klárinn fer,
og lund mín er svo létt
og lund mín er svo létt
eins og gæti ég gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.

Hve fjör í æðar færist fáknum með.
Hve hjartað léttar hrærist hlær við geð
að finna fjörtök stinn
að finna fjörtök stinn
Þú ert mesti gæðagammur,
góði Léttir, klárinn minn.

Hannes Hafstein

15 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Samhryggist innilega, Linda mín.

11:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilegar samúðarkveðjur til þín, Linda.

2:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

leitt að heyra, samhryggist.

3:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

afi sendir þér innilegar samúðarkveðjur.

8:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég samhryggist þér innilega.

8:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Glæsilegur maður hann Sævar pabbi þinn. Besta blessun fylgi honum til fallega Tóta. Trúlega eiga þeir góðar stundir framundan.

Hér heima logar kerti fyrir þig Linda mín og fólkið þitt sem eftir sitjið með sorgina.

10:37 e.h.  
Blogger anna.is said...

Ég samhryggist þér elsku Linda,

-anna.is

12:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Linda mín, ég samhryggist þér/ykkur innilega. Gulla Hestnes

1:10 e.h.  
Blogger Guðjón Viðar said...

Samhryggist

9:16 f.h.  
Blogger Blinda said...

Takk fyrir allar kveðjurnar elskurnar. XXX

1:37 e.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

Elsku Linda mín, ég samhryggist þér og fjölskyldu þinni innilega.

3:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Linda mín! Ég samhryggist þér og fjölskyldu þinni. En minningin um vænan mann mun lifa!

11:28 e.h.  
Blogger inga hanna said...

Ég samhryggist.

8:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Linda mín, innilegar samúðarkveðjur sendi ég þér og þinni fjölskyldu....
Ásdís Ásgeirsdóttir

9:13 f.h.  
Blogger Syngibjörg said...

Sendi þér og þínum innilegar samúðarkveðjur.

10:17 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home