sunnudagur, október 05, 2008

Raunir 51

Langar að leggja inn beiðni um sjö daga helgi
ásamt nokkrum nuddtímum
heitum potti
og hágæða amerísku rúmi.

Ekki væri verra ef fylgdi með
eins og eitt stykki hvít strönd
með tilheyrandi sól og sumaryl.

Hendi þessu hér með út í kosmosið
og ulla um leið framan í kreppuna.

Nú er að sjá hversu mikil áhrif ég hef í henni veröld.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ef ég gæti þá mundi ég veita þér þetta, svo góðar hugsanir verða að duga. Ég mynda ullakór með þér. Kær kveðja í kotið. Gulla Hestnes

9:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

og hvað stoppar þig mín kæra...?

bannað að segja að frí frá vinnu og líka bannað að segja peningar...

9:41 f.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

Megi ósk þín rætast:)

1:10 e.h.  
Blogger Blinda said...

Takk fyrir það mæðgur góðar...

(uuuu, fía mín.....það væri óskandi - hins vegar er það bara vonandi að maður verði með vinnu - og eigi einhverja peninga.....tjah fyrir t.d. slátri eða hrísgrjónum eftir hamfarirnar!!!)

4:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home