sunnudagur, desember 07, 2008

Raunir 89

Í dag fór ég í leik.
Leikurinn gekk út á það
að láta sem ekkert sé..........

Ég fór inn í búðir
sem ég fer ALDREI inn í.
Mátaði grimmt
og skoðaði og togaði
spurði og vesenaðist,
en keypti ekki neitt.

Mitt hégómlegas sjálf
skemmti sér ágætlega við þessa iðju
( eins og þegar ég sérpantaði flygilinn hjá dónalegu sölukonunni um árið)

Ég er viss um að þetta er eitthvað svona konu - eitthvað
en þetta virkaði sem plástur á sálina.

1 Comments:

Blogger SHAR said...

hehehe gaman að þykjast ætla að eyða fullt af pening en VELJA svo bara að gera það ekki

11:52 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home