þriðjudagur, desember 02, 2008

Raunir 86

Skilur liðið ekki
að við viljum ekki að sama fólkið
sem kom okkur í þessa stöðu
hafi það hlutverk að koma okkur úr henni?

Skilur það ekki að því er ekki treystandi
vegna þess að það einfaldlega svaf á verðinum
og klúðraði öllu saman?

Ég verð svo dolfallin þegar ég hlusta á liðið
tala um mótvind og snjóskafla........
Hvað er að þessu pakki????

Þetta er svo óafsakanlegt að ég stend stundum á garginu!

En........
þeim tókst þetta í Thailandi
hvers vegna getum við ekki lufsast til að standa saman Íslendingar?

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

nei, málið er einmitt að það fattar þetta enganveginn! Að hlusta á þau tala um að einmitt núna þurfi styrka stjórn og þess vegna geti þau ekki farið frá, ótrúlegt!

11:58 e.h.  
Blogger Hallveig said...

Þau fara nú ekki að sleppa hendinni af þægilegu innivinnunni svona einn tveir og þrír er það nokkuð?

2:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

nei, ég er ansi hrædd um ekki :'(

8:06 f.h.  
Blogger Blinda said...

Andsk....... pakk!

6:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home