laugardagur, nóvember 01, 2008

ekki beint Raunir 70

Litla spottið mitt er 18 ára í dag.
Hefur leyfi til að gifta sig,
kjósa,
ásamt því að vera fjárráða
og mega reykja sígarettur.

Sem betur fer hefur hún engan áhuga
á því síðastnefnda.

Í kvöld er hún með grímubúninga partý
og af henni skín ekkert nema fegurð
og hamingja.

Ég er stolt af stelpunni minni
og mér
fyrir að hafa potað henni í heiminn
(öllum 16 og hálfum merkunum)
og alið hana rétt og vel upp.

Afsakið meðan ég snýti mér aðeins.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

innilega til hamingju með dóttlu!

6:22 e.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

Aftur til hamingju með hana. Og já, þú mátt sko vera stolt:)

7:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju!

8:26 f.h.  
Blogger Syngibjörg said...

til hamingju, hamingju, hamingju...

11:35 f.h.  
Blogger Blinda said...

Takk fyrir það elskurnar

7:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

AAARRRGGG til hamingju með snúlluna...!
alveg hreint kraftaverk hvað þessi börn verða gömul á meðan við eldumst ekki neitt... hlýtur að hafa verið 10 ára þegar þú áttir hana...
kiss/Fía

12:34 f.h.  
Blogger Blinda said...

9 og hálfs - (smile)

10:22 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home