föstudagur, október 31, 2008

Raunir 69

Það verður nú bara að segjast
að það er aldrei auðvelt að hefja sambúð
eða samband
þegar þú ert kominn á miðjan aldur.......
Reyndar held ég að það sé aldrei auðvelt,
en það verður ekki auðveldara með auknum kröfum og þroska
( ásamt vana, þrjóskuröskun og fastheldnum einbúahætti)

Þó hefur aumingjans útlendingurinn átt óvenju erfitt uppdráttar.

Honum var jú skellt beint inn í banalegu föður míns
og síðar fráfalls,
með öllu sem því fylgir -
tilfinningalegum rússibana, skapsveiflum og þreytu,
ásamt 100 praktískum atriðum sem eru flókin fyrir nýkynntan manninn.
Í kjölfarið fylgja aðrar sveiflur sem tengjast öðru fráfalli,
skítlegu veðri, roki rigningu og óvenjulegum kulda
og svo er klikkt út með efnahagslengu hruni landsins.

Maðurinn fær hvergi vinnu
og er nánast hlegið að honum þegar hann spyr.
Bæturnar sem hann fær frá sínu ríki
eru að engu orðnar þegar búið er að skipta þeim upp í krónur
á gengi sem á sér enga stoð í raunveruleikanum,
en eru reiknaðar út af einhverjum jakkafötum í Brussel.

Nú er svo komið að við sjáum ekki fram á annað
en að hann haldi aftur heim
og reyni að koma sér í vinnu þar
hýmandi einn í herbergiskytru
þar sem að íbúðina sína leigði hann fram í febrúar.
Ég get ekki hugsað mér að segja upp minni vinnu núna
sem ég þó hef (ennþá)
vitandi ekkert um framhaldið og hvort eitthvað annað býðst úti
og því er þetta ákveðinn skilnaður
með hugsuninni "að sjá til hvað gerist."

Helst vildi ég bara stinga af með honum
burt frá þessari prumpuholu,
en það er ekki mjög praktískt
og frekar vitlaust eins og staðan er núna.
Þetta hefur allt saman tekið á sambandið
og ekkert af því er jákvætt fyrir rómantík
eða glænýja ást og samskipti yfir höfuð.

En svona er víst andsk...... ástandið
og lítið sem hægt er að gera í því
annað en að reyna að vera hugrakkur
og brosa.

Áttaði mig líka á einu í dag.
Unglingurinn verður 18 ára á morgun - 1. nóvember.
Þá fellur niður meðlag frá föður
og barnabætur sem áttu að greiðast 01.11
verða ekki heldur greiddar.

Gaman að fagna þessum áfanga ungpíunnar
í miðri kreppu og vesöld.
Á ekki einu sinni fyrir afmælisgjöf.
(jú ef það er eitthvað fyrir 5000 kall
sénsinn að það slái í gegn!)

Ó ég er svo skemmtileg núna.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ef stelpan er í framhaldsskóla þá á hún rétt frá framlagi frá föður til tvítugs.

Maðurinn þinn er mjög góður gítaristi; stíllinn er kannski ekki allra, en hann er samt mjög góður. Gæti hann unnið sem "lounge" tónlistarmaður?

4:41 e.h.  
Blogger Blinda said...

Takk fyrir það Elías.
Jú hann gæti það auðveldlega - en hann var nú langt frá sínu eðlilega formi þarna um kvöldið, enda jafn - ef ekki meira stressaður en ég :-)....en hann er jú mjög góður og gæti vel unnið sem slíkur og hefur reyndar gert það ( auk þess að hafa stofnað og verið í hljómsveit til margra ára)Ertu með eitthvað í huga?

6:26 e.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

Til hamingju með dótturina mín kæra Linda. Vonandi kemur eitthvað upp í hendurnar á manninum, ég svo sannarlega vona það.

1:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi, ljótt að heyra, en til hamingju með dúlluna þína!

Sendi ykkur góðar kveðjur með margfaldri þökk fyrir frábæra tónleika. Ég væri alveg til í endurtekningu og myndi svo sannarlega mæta aftur í salinn.

Vona að ykkar að mál leysist farsællega á einn eða annan máta.

5:33 e.h.  
Blogger Blinda said...

Takk fyrir það Swany

Takk fyrir allt þetta Hugskotið mitt. Auðvitað fer allt einhvernveginn - og auðvitað vel
;-)

7:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

aaaahhhaaa þetta svarar öllum spurningum sem ég setti fram í mailinu fyrr í kvöld... fífí

12:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

oZzy moved away earlier, I miss his cock, for always hungry for intercourse.


FUCK MY PUSSY!

my site hcg injections

10:30 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Wе're a group of volunteers and opening a new scheme in our community. Your website provided us with valuable information to work on. You have done an impressive job and our entire community will be thankful to you.

Check out my site: better than steroids

11:27 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home