miðvikudagur, júní 11, 2008

Raunir 10

Sexy undirföt geta verið trikkí stöff,
eins og það er gaman að þeim.

Til að mynda finnst mér fáranlegt
að standa í sokkabelti og lacy sokkum
og engum skóm.

Það er bara eitthvað ferlega hallærislegt við það.

Einnig getur verið hættulegt óvönum
að stunda heimaleikfimi í háum hælum.
Let's face it- lífið er ekki bíó.
(Buxur eiga það t.d. til að festast um ökkla, bolir um axlir
og það er ekki gaman að þrífa
eftir "9 1/2 weeks" matarupplifun á nærfötunum)

Netsokkabuxur geta líka orðið púkó
þegar puntubrókin er farin
og hvað er málið með þá ókvenlegu athöfn
að smella klofbót?

Persónulega finnst mér líka kona
sem er ber að neðan í engu nema haldara
einkar lummuleg.
Svipað og karlmaður í engu öðru
en skyrtu og svörtum sokkum

Sömuleiðis hafa flestir karlmenn
einungis komist í kynni við samfellur
og sokkabandaklemmur
einstaka sinnum á ævinni -
sumir jafnvel bara einu sinni......
Á brúðkaupsnóttina.

Það getur valdið smá vandræðagangi.

Aumingjans mennirnir fara í klessu
því þeir kunna ekkert á þessar smellur
bönd, reimar og dót.

Ég horfði á eina hjásvæfu fara í panikk-kast
vegna þess að hann vissi ekki á hverju hann ætti að byrja.
Eru það sokkarnir......
haldarinn........
og hvernig losarðu brókina undan beltinu???
Sú gleði endaði í tárum,
hans - ekki mínum.

Um daginn stóð ég í fínni búð
og mátaði ýmiskonar samfellur.
Vandamálið var
að þegar þær pössuðu um botninn
vantaði alltaf eitthvað á toppinn.
Sölukonan var ekki lengi að koma með lausnina
"Þú kaupir bara svona gervibrjóst
og setur inn í skálarnar. (!!)

Ó, je.

Sé það fyrir mér......
Sérlega kynæsandi
að láta týna af sér flottheitin
og út rúlla litlir glærir pokar fullir af kvoðu.
"Uuuu hvað er þetta?"

-----------

Neibb. Virkar ekki.

Persónulega finns mér fallegir náttkjólar
og sloppar oft auðveldari lausn,
en það er varla til sá karlmaður
sem geymir ekki innra með sér draum
um konu í lacy undirfötum.....
Þangað til hann upplifir það.

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

sammála þér með smellur og krækjur á samfellum, voða erfitt að halda kúlinu þegar maður paufast við að smella/krækja þessu.

miklu minna mál með sokkabeltin...

9:36 e.h.  
Blogger Blinda said...

ég get smellt sokkabeltunum no prob- spurning með karlana ;-)

9:44 e.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

ég kann ekkert á svona fínlegheit. Ég fór inn í svona (roðn) sexí undirfatabúð fyrir einhverju síðan og sá þennan líka fallega og þokkafulla kjól. Ég greip hann, mátaði og fékk þvílíka hláturskastið þegar ég sá mig í speglinum. Það var ekkert þokkafullt né fallegt við mig í þessum kjól þannig að ég held mig við, enn um sinn, flísnáttbuxurnar:)

9:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta smelludót tefur barasta fyrir! Við konur erum sexí/kúl á Evuklæðum. Þar hafið þið það dömur mínar. Gulla Hestnes

10:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

haha, mér hefur líka alltaf fundist wonderbra og pushups og allt það vera tóm vörusvik, lítur út fyrir að vera æðislegur barmur og svo heim í svefnherbergi og ekkert á bak við það :D

11:25 e.h.  
Blogger Syngibjörg said...

Amen....

11:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fyndinn póstur í ljósi þess að ég festi kaup á ( í fyrsta sinn) á svona seekkksssíííí stockings, engar klemmur og ekkert vesen, trúðu mér þetta verður orðið ónýtt af mátunum fyrir framan spegil áður en nokkur karlpeningur fær að sjá þetta.
En það er gaman að eiga þetta ;)

9:16 f.h.  
Blogger Blinda said...

swany ekki láta svona - prófa meira :-)

Gulla - words from the wise (en stundum er gaman að pakka gjöfinni inn ;-) )

Fávitabarn - ..... þarf ég að segja meira?

2:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú segir stundum svo skemmtilega frá að ég sit skellihlæjandi fyrir framan tölvuna :) Gaman að lesa þetta :)

11:38 e.h.  
Blogger Þórdís Gísladóttir said...

Hvað eru lacy undirföt? Og nota virkilega einhverjir sokkabönd?

7:34 f.h.  
Blogger Blinda said...

Þakka það Anna Margrét :-)

Það eru svona puntuleg "blúndu" undirföt þórdís og já - það er hellingur af konum sem nota sokkabönd - flestar þó við sérstök tækifæri ;-)

7:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home