föstudagur, júlí 11, 2008

Raunir 25

Þrátt fyrir ýmiskonar vesen og vandamál undanfarið.
Þrátt fyrir að frjóið af Öspunum sé að gera mig galna.
Þrátt fyrir að ég sé nú köflótt með bóndabrúnku.
Þrátt fyrir að enn lækki í buddunni minni.
Þrátt fyrir að margt sé heimskulegt í þessum heimi.

Þá er ég eitthvað svo lifandis skelfingar hamingjusöm núna.
Held ég sé komin til baka.

Nú ætla ég bara að vera.

6 Comments:

Blogger Syngibjörg said...

Vertu velkomin :O)

12:02 e.h.  
Blogger Kristín said...

Sko! Vertu.

12:16 e.h.  
Blogger Ameríkufari segir fréttir said...

Ævinlega hjartanlega velkomin:) Nú sendi ég þér risaknús!!!

1:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Komin til að vera. Gott gott. Kær kveðja Gulla Hestnes

4:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gott að heyra.

8:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hohoho ég er líka vel skellótt eftir að hafa setið með þér í sólinni. Nú þarf ég að vera í sama bolnum í allt sumar - sá eini sem passar við förin.

hamingjan þín gleður þig - have fun...

10:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home